HæHæ.... það er orðið soldið langt síðan síðast! eigum við að ræða það eitthvað??
Ég er sem sagt búin að fara til London, sem var btw æðislega gaman! Ég verslaði samt ekki eins mikið og ég ætlaði mér, en ég fann mér eitthvað smotterí... en þessi ferð heppnaðist bara helvíti vel.
Núna uppá síðkastið hef ég ekki gert neitt mikið annað en að vinna. Fór á Ak þar síðustu helgi með Lenu, þar verlsuðum við doldið

og fengum okkur einn Greifa! mmmm

Ég og Lena vorum rosaduglegar að fara í sund í síðustu viku og stefnan er að vera duglegri í þessari

Svo er mín líka búin að vera virk í hestonum, við svavar drullum okkur á bak eftir vinnu

geðveikt dugleg! Og svo er ég ekki búin að gera mikið annað. En vá erum við að tala um geggjað veður sem er búið að vera? Jesús, enda er sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn eftir viku

þetta er allveg að koma!
Um helgina var ég að vinna til eitt á laugardaginn og svo fórum við heim fljótlega eftir það. Um kvöldið borðuðum við bara góðan mat og horfðum svo á söngvakeppnina, vá hvað ég er stolt af Ingunni að hafa lent í 2.sæti

þetta var hevý flott hjá henni!
Á sunnudaginn fórum við á krókinn um hádegisbil og gerðum okkur reddý í fermingarveislu. Þetta var rosa fínt allt saman
Jesús hvað er stutt í sumarið! og þetta verður svo gott sumar, ég bara finn það á mér!
Og ég á bráðum afmæli og það verður haldið svo feitt partý því við Lena ætlum að halda upp á okkar saman, og það verður svo magnað!

Og ég vil koma því hénna að að Sigrún Alda mín varð tvítug 12.04´08 og er að koma heim frá Miami á morgun! hún er búin að vera alltof lengi þanna úti!
En ég veit að ég er að gleyma að segja ykkur eitthvað en það verur þá bara að hafa það!
FjólaN kveður!:**